Car insurance

WordPress 3.2 og Centos 5.x

Þann 4 júlí kom WordPress 3.2 út og ber útgáfan nafnið „Gershwin“.  Samhliða þessari útgáfu var forkröfum fyrir php stuðning breytt og lágmarksútgáfa sett í útgáfu 5.2.4. Centos 5.6 kemur með útgáfu 5.1.6 af php og því er stuðningur í Centos/RHEL 5 ekki lengur fullnægjandi. Til að uppfæra php í nýrri útgáfu þá hefur Remi verið að pakka af nýrri php útgáfum fyrir stýrikerfi eins og Centos/RHEL en leiðbeiningar má finna á blogginu hans http://blog.famillecollet.com/pages/Config-en

Leiðbeiningarnar eru einfaldar í sjálfu sér

  1. Sækja skilgreininguna fyrir EPEL  (Extra Packages for Enterprise Linux) hirsluna
  2. Sækja skilgreininguna fyrir pakkana hans REMI
  3. Setja skilgreiningarnar inn með aðstoð rpm pakkastjórans
  4. Virkja kóðahirsluna hans REMI tímabundið og sækja og setja inn uppfærða php pakka.

Ég lenti í vandræðum og þurfti að henda út pökkum sem skarast á við þá pakka sem REMI hefur pakkað til að fullnægja forkröfum fyrir php. Ég þurfti tam. að keyra inn bæði php og mysql.

Enterprise Linux 5 (with EPEL)

wget http://download.fedora.redhat.com/pub/epel/5/i386/epel-release-5-4.noarch.rpm
wget http://rpms.famillecollet.com/enterprise/remi-release-5.rpm
rpm -Uvh remi-release-5*.rpm epel-release-5*.rpm
yum --enablerepo=remi update php

eða

yum --enablerepo=remi update php mysql

Ef uppfærslan gengur að óskum þá ætti að vera hægt að uppfæra wordpress upp í útgáfu 3.2.

Hér má sjá örlitla kynningu á því hverju var verið að breyta í útgáfu 3.2

Njótið.

About Samúel Jón Gunnarsson

Ég er hópstjóri, sambland af rafmagns og tölvutæknifræðing, forritari, linux og unix nörd með eindæmum, bloggari, faðir, eiginmaður, tónlistar- og óbilandi græjukall. Eitt sinn var ég frystitoarasjómaður og gerði við sjónvörp (þó ekki á sama tíma ) :-)

11. júlí 2011 by Samúel Jón Gunnarsson
Categories: Linux / Unix, Óflokkað | Tags: , , , | Leave a comment

Leave a Reply

Required fields are marked *

*