Car insurance

Smámynd af mér og þér á netinu

Spjallþráður með og án gravatar
Hvernig fæ ég smámynd til að birtast við hliðiná athugasemdum sem ég geri inn á þessum vef eða á öðrum sem eru drifin af wordpress vefumsjónarkerfinu ? Heppnin er með þér en framleiðendur WordPress umsjónarkerfisins bjuggu til hliðarafurð sem nefnist GRAVATAR og stendur fyrir Globally Recognized Avatar. Þessi þjónusta er ókeypis og gerir þér kleift að hengja ljósmynd á netfangið þitt sem síðan er flett upp í hjá gravatar þjónustunni og skilar ljósmynd tilbaka. 

Þjónustan virkar í grófum dráttum svona:

  • Þú stofnar aðgang hjá gravatar.com þér að kostnaðarlausu
  • Skráir netföngin þín
  • Hleður upp ljósmynd(ir) af sjálfri/sjálfum þér
  • Tengir ljósmynd við netfang
  • lokið

Þegar þú ert kominn með þinn eigin „gravatar“ þá ættir þú að sjá ljósmyndina af sjálfri/sjálfum þér við hliðin á þeim færslum sem þú gerir athugasemdir við. Gravatar-inn virkar einnig á öllum öðrum vefumsjónarkerfum sem styðja þessa þjónustu.

Hér fyrir neðan má sjá örstutta kynningu á Gravatar

Er ekki ráð að skella sér á eins og einn gravatar ?

About Samúel Jón Gunnarsson

Ég er hópstjóri, sambland af rafmagns og tölvutæknifræðing, forritari, linux og unix nörd með eindæmum, bloggari, faðir, eiginmaður, tónlistar- og óbilandi græjukall. Eitt sinn var ég frystitoarasjómaður og gerði við sjónvörp (þó ekki á sama tíma ) :-)

10. júní 2011 by Samúel Jón Gunnarsson
Categories: Af netinu, Óflokkað, Stafræna lífið | Leave a comment

Leave a Reply

Required fields are marked *

*