Lagfæring á grub ræsivalmynd eftir enduruppsetningu á windows
Það er þekkt vandamál að ef þú ert með linux stýrikerfi á vélinni þinni og þú ákveður að setja upp windows stýrikerfi eða framkvæma endurinnsetningu eða uppfærslu á því þá yfirskrifast Master Boot Record (MBR) og eingöngu er hægt að ræsa upp í windows. Þetta er hægt að leiðrétta með tiltölulega lítilli fyrirhöfn með því að ná í live cd eða rescue cd fyrir linux stýrikerfið sem keyrir á vélinni. Leiðbeiningarnar hér fyrir neðan miða við lagfæringu á GRUB2 sem stendur fyrir „Grand Unified Boot Loader“ útgáfa 2 og voru framkvæmdar á Ubuntu 9.10 linux stýrikerfi. Hinsvegar ættu þessar leiðbeiningar að nýtast á öllum þeim linux stýrikerfum þar sem GRUB2 er notaður til ræsingar.
Diskurinn fyrir ubuntu 9.10 sem hægt er að ræsa upp af má nálgast hér: http://www.ubuntu.com/getubuntu/download
Leið 1
Þegar leið 1 er valin þá er verið að ræsa upp á Live CD og ræsa upp í skel og vísa í hvar grub rótin er og á hvaða disk á að rita master boot record (MBR).
sudo -i fdisk -l mount /dev/sda5 /mnt grub-install --root-directory=/mnt/ /dev/sda
Og ef allt gékk að óskum þá er óhætt að endurræsa kerfið og sjá hvort lagfæringin skilar sér. Ef þessi aðferð klikkar er hægt að fara í leið 2 hér fyrir neðan.
reboot
Hér að ofan eftir að hafa keyrt fdisk -l þá kom í ljós að linux stýrikerfissneiðin var á sneið 5 á Serial/SCSI disk A eða /dev/sda5
Leið 2
Þegar leið 2 er valin þá er verið að tengjast linux stýrikerfissneiðinni ásamt því að gera vélbúnaðinn sýnilegan með því að tengja dev,proc og sys slóðirnar inní sneiðina, en með þessari aðferð er hægt að framkvæma mun víðtækari lagfæringar þar sem hér er verið að svissa af Live CD yfir á raunverulega-stýrikerfið sem keyrir á disknum með aðstoð change root skipunarinnar. Þessi aðferð er td. notuð til að lagfæra vélar eftir að þær hafa verið hakkaðar eða skemmdar með einhverjum hætti.
sudo -i fdisk -l mount /dev/sda5 /mnt mount --bind /proc /mnt/proc mount --bind /dev /mnt/dev mount --bind /sys /mnt/sys
Hér flytur þú þig svo inn í stýrikerfið á vélinni þinni með Change Root (chroot) og velur að nota bash skel.
chroot /mnt /bin/bash
Svo uppfærum við grub skilgreininguna með eftirfarndi skipun með tilvísun í harðadiskinn sem á að skrifa nýtt MBR á sem í þessu tilfelli er SDA (Serial/Scsi diskur A)
grub-install /dev/sda
Þvínæst aftengjumst við stýrikerfinu og förum aftur yfir á rescue cd eða live install diskinn
umount /mnt/sys umount /mnt/dev umount /mnt/proc exit
Svo endurræsum við ef allt hefur gengið að óskum og staðfestum virkni
reboot

Takk, þetta hjálpaði mér
Gat samt ekki ræst upp Windows eftir þessar breytingar, af því að Windows XP hafði verið hent út fyrir Win 7, þurfti því þetta til viðbótar:
sudo update-grub
og þá virkaði ræsing á Windows 7