Car insurance

Einfaldaðu þér notkun á SSH með aðstoð stillingarskrá

Ef þú vinnur mikið í skel dags daglega vegna þess að þú ert kerfisstjóri eða annarskonar tölvugúrú og vinnur vél frá MacOSX eða Linux stýrikerfi þá mæli ég með að þú setjir upp config skrá fyrir ssh til að einfalda þér lífið. Config skrá er hægt að nota til þess að setja almennar stillingar eða staðbundnar stillingar á ssh. Það er hægt að líta á þessa skrá sem einskonar „bookmark“ skrá.

Það er ekki víst að stillingarskráin sé til staðar en hún er staðsett undir /home/<notendanafn>/.ssh/config í linux eða undir /Users/<notendanafn>/.ssh/config. Ef við göngum út frá því að mappan sé ekki til staðar þá myndum við stofna hana með eftirfarandi hætti:

mkdir $HOME/.ssh
chmod 700 $HOME/.ssh

Það er mikilvægt að skráarréttindin séu í lagi þeas 700 sem þýðir að eingöngu að þú sem notandi færð aðgang að þessari möppu. Næst skulum við stofna config skránna.

touch $HOME/.ssh/config
chmod 600 $HOME/.ssh/config

Það er það sama upp á teningnum hér, en skráarréttindin eru 600 sem þýðir að eingöngu þú sem notandi hefur aðgang að þessari skrá.

Nú skulum við henda inn nokkrum stillingum í skránna og sjá hvað það færir okkur, en ég er vanur að nota vi ritilinn en ykkur er frjálst að nota það sem ykkur þykir þægilegast.

#
#Sameiginlegar Stillingar
#
ForwardAgent yes

Eins og sjá má þá er ég að áframsenda SSH lyklana mína með þegar ég tengist, en til þess að þessi stilling hafin einhvern tilgang þá þarftu að vera búin að útbúa ssh lykla sem er búið að hlaða inn í ssh-agent (handbók yfir ssh-agent má finna í skel með því að slá inn man ssh-agent)

#
#Staðbundnar stillingar
#

# Þessar stillingar eiga við þegar tengst er við
# vinnulén en þá er ég að setja ma. annað notenda-nafn
# áframsenda skjáin minn til vélarinnar sem ég er að kerfisstýra.
# Ath. að ForwardX11Trusted þarf stundum að nota með td. Java forritum

Host *vinnuLén1.is *.vinnuLén2.is
    User vinnuGaur
    ForwardX11 yes
    ForwardX11Trusted yes
    Compression no

# Þessi stilling virkar á allar vélar sem eru á
# staðarnetinu heima hjá mér og takið eftir að
# hér gilda sömu reglur fyrir 2 lén þeas. lenidMitt.is og local

Host *lenidMitt.is *.local
    User heimaGaur
    ForwardX11 yes
    ForwardX11Trusted yes
    Compression no

# Þessi stilling á við ákveðið vélarnafn en ekki
# tiltekið lén, en hér er ég að festa notendanafnið frontrow
# þegar ég er að tengjast appletv

Host appletv*
    User frontrow

# Hér er ég með vél sem ég er að stjórna yfir internetið og vill
# halda traffík í lágmarki og þjappar því allri umferð

Host www.lenidMitt.is www
User superGaur
ForwardX11 yes
Compression yes
CompressionLevel 9

# Og fyrir alla vélar sem ég hef ekki tiltekið sérstaklega
# þá eiga neðangreindar stillingar við.

Host *
ForwardAgent yes
Compression yes
CompressionLevel 9
KeepAlive no

Nú er ráð að vista skránna og prófa hvort það virki að segja td. shh www.lenidMitt.is og mv. ofangreint ættir þú að auðkenna sem superGaur.

Njótið….

About Samúel Jón Gunnarsson

Ég er hópstjóri, sambland af rafmagns og tölvutæknifræðing, forritari, linux og unix nörd með eindæmum, bloggari, faðir, eiginmaður, tónlistar- og óbilandi græjukall. Eitt sinn var ég frystitoarasjómaður og gerði við sjónvörp (þó ekki á sama tíma ) :-)

09. mars 2010 by Samúel Jón Gunnarsson
Categories: Linux / Unix, Makkinn, Óflokkað, Stillingar, Stillingar | Tags: , , , , , | Leave a comment

Leave a Reply

Required fields are marked *

*