LOLCODE og LOLCATS
Ingimar benti mér á skondna grein á linux.com um LOLCODE en það er afsprengi frá http://icanhascheezburger.com/ sem er síða með myndum af kisum og öðrum dýrum með ummælum rituðum að hætti lolkattana. Eins áður kom fram er lolcode afsprengi ritháttar lolcats og er tungumálið svona dáldið svipað því hvernig Ali G talar. Sem dæmi úr kóðanum þá er breyta skilgreind sem „I HAS“ og „I HAS CHEESEBURGER“ er þá að skilgreina breytuna CHEESEBURGER
. Svo byrjar forritið á HAI (hey) og endar á KTHXBYE ( ok thanks bye).
Dæmi um smá forrit með smá lúppu:
HAI
I HAS A CHEEZBURGER ITZ 1
IM IN YR LOOP
VISIBLE "I has dis many: " N CHEEZBURGER
IZ CHEEZBURGER BIGGER THAN 11 O RLY?
YA RLY
GTFO
NO WAI
UP CHEEZBURGER!!1
KTHX
KTHX
KTHXBYE
Ef þetta er ekki nördahúmor í lagi þá veit ég ekki hvað
. Allavegana höfum við Ingimar hlegið okkur máttlausa á http://icanhascheezburger.com/ vefnum.
